Skrifstofa WFP á Norðurlöndum
símanr: +4535467000
fax: +4535467133
tölvupóstur: wfp.nordic@wfp.dk
WFP Ísland
Matvælaaðstoð Sameinuðu þjóðanna

Síðast uppfært 12-12-2006
Fallhlífaaðflutningur matvæla í Súdan. WFP/F. Paget

Barist gegn hungri um allan heim


Matvælaáætlun SÞ (WFP) er sú stofnun Sameinuðu þjóðanna sem aðstoðar þá fátækustu í heiminum. Matvælaáætlunin er stærsta hjálparstofnun heims, og brauðfæddi hún meira en 104 milljónir manna í 81 landi árið 2003.

Stefnuskrá Matvælaáætlunar SÞ er tvískipt. Í fyrsta lagi hefur stofnunin að markmiði að nýta matvælaaðstoð til þess að styðja við efnahagslega og félagslega þróun. Í öðru lagi veitir stofnunin matvælaaðstoð til fólks á átaka- og hörmungasvæðum.

Matvælaáætlun SÞ aðstoðar fólk í neyð, hvort sem neyðin er af völdum náttúruhamfara, átaka eða alnæmisfaraldurs. Stofnunin gefur hungruðum og fátækum von með því að útvega þeim matvæli og sinna þannig þeirra helstu grunnþörf.

15 milljónir barna í heiminum fá staðgóða máltíð á hverjum degi með hjálp skólamáltíðarverkefnis Matvælaáætlunarinnar. Norðurlöndin eru sterkir stuðningsaðilar Matvælaáætlunarinnar, en stjórnvöld þeirra veittu framlög að virði 150 milljóna Bandaríkjadala til stofnunarinnar árið 2003.


FRÉTTATILKYNNING frá utanríkisráðuneytinu, Reykjavík, 12. desember 2006. Eftir Steinþór Guðbjartsson Verkefnið "Börn styðja börn" felst í því að sérhvert grunnskólabarn á Íslandi styrkir eitt grunnskólabarn í Úganda og Malaví í Afríku um eina skólamáltíð alla skóladaga ársins næstu tvö árin. Ísland eykur til muna framlag sitt til Matvælaáætlunar SÞ (WFP)

Utanríkisráherra hefur ákveðið að setja af stað sérstakt þróunarverkefni í Úganda og Malaví. Verkefnið ber heitið ?Börn styðja börn? og gengur út á að sérhvert grunnskólabarn á Íslandi styrki eitt grunnskólabarn í Úganda og Malaví um skólamáltíð alla skóladaga ársins næstu tvö árin.

Þetta þýðir að greitt verður fyrir skólamáltíð fyrir um 45.000 börn í tvö ár. Verkefnið verður unnið af Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (World Food Programme, WFP) og er kostnaður við það 110 milljónir króna á ári eða samtals 220 milljónir króna.

Ísland hefur tilkynnt veitingu framlags að upphæð 10 milljónum íslenskra króna til verkefna Matvælaáætlunar SÞ (WFP). Framlaginu var veitt til Asíudeildar WFP vegna hamfaranna eftir flóðbylgjurnar við Indlandshaf.



World Food Programme © 2004